Veðurspjallið


Ljósmynd: Takashi S

Hitamet í ágúst

Ágúst var hlýr, þá sérstaklega síðari hluti mánaðarins. Að tiltölu var hlýjast inn til landsins á Norðaustur- og Austurlandi. Hæsti hiti mánaðarins mældist 29,8 stig á Egilsstaðaflugvelli þ. 16. og er það hæsti hiti sem mælst hefur á landinu í ágúst. Talsvert hvassviðri var á sunnan- og vestanverðu landinu um verslunarmannahelgina.

Dagsetning: 01/10. 2025. Kl. 15:19

Allt landið

Sunnan 8-15 m/s austanlands, en annars hægari. Víða væta með köflum. Sunnan og suðvestan 3-10 og skúrir á morgun, en bjartviðri á Norðausturlandi. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast norðaustantil.

Dagsetning: 01/10. 2025. Kl. 14:12